Armani I WILL Eau De Parfum

I WILL frá Giorgio Armani er kraftmikill og nútímalegur ilmur fyrir karla þar sem ferskir tónar bergamóts og lavender blandast vanillu frá Madagaskar og kröftugum Woodleather-tónum. Úr verður djarfur og eftirminnilegur ilmur sem endist lengi.

Stærð 30ml
Setja í körfu Komið í körfu

Uppgötvaðu I WILL frá Giorgio Armani – nýja sýn á karlmennsku, framsetta í glæsilegum svörtum ilmvatnsglasi með hlýjum gylltum áherslum og afgerandi formi.

I WILL lætur strax finna fyrir sér með geislandi ferskleika. Ferskt og tindrandi bergamót frá Kalabríu á Ítalíu blandast ilmríku lavender, á meðan fjólulauf gefa ilminum bjartan og einkennandi blæ.

Í hjarta ilmsins mætast sterkar andstæður. Hlý, seiðandi og ávanabindandi vanilla frá Madagaskar blandast djúpum viðar- og leðurtónum. Þar gegnir Woodleather lykilhlutverki, sérstök ilmsameind sem gefur ilminum aukna dýpt, kraft og endingu. Hún undirstrikar jafnframt ríkulegan vanillutón og skapar hlýjan, kraftmikinn og afgerandi karakter.

I WILL vekur sjálfstraust og skilur eftir sig kröftugan og auðþekkjanlegan ilmslóða. Ilmur sem hentar jafnt að degi sem kvöldi og er ætlaður körlum sem hafa styrk og vilja til að móta eigin örlög.

•Ilmur sem endurskilgreinir nútímalega karlmennsku og sýnir vanillu í nýju ljósi með dökkum og fáguðum blæ.
•Hentar jafnt að degi sem kvöldi.
•Opnast með fersku bergamóti frá Kalabríu á Ítalíu, ilmríku lavender og björtum tónum fjólulaufa.
•Í hjartanu mætast hlýtt vanilluþykkni frá Madagaskar og kraftmiklir Woodleather-tónar.
•Ilmurinn kemur í glæsilegu svörtu ilmvatnsglasi með hlýjum gylltum áherslum og afgerandi hönnun.

Úðið ilminum á úlnliði, háls og innanverða olnboga fyrir samstundis ferskleika og aukið sjálfstraust sem fylgir þér allan daginn.

560638 05 - INGREDIENTS: ALCOHOL • PARFUM / FRAGRANCE • AQUA / WATER / EAU • TETRAMETHYL ACETYLOCTAHYDRONAPHTHALENES • LINALYL ACETATE • CITRUS AURANTIUM BERGAMIA PEEL OIL • CARVONE • LIMONENE • LINALOOL • VANILLIN • JUNIPERUS VIRGINIANA OIL • POGOSTEMON CABLIN OIL • PINENE • LAVANDULA OIL/EXTRACT • HYDROXYCITRONELLAL • COUMARIN • SCLAREOL • BETA-CARYOPHYLLENE • CITRUS AURANTIUM PEEL OIL • CITRONELLOL • ROSE KETONES • PELARGONIUM GRAVEOLENS FLOWER OIL • CITRUS LIMON PEEL OIL • TERPINEOL • TERPINOLENE • GERANYL ACETATE • GERANIOL • CITRAL • ALPHA-TERPINENE • METHYL 2-OCTYNOATE • CAMPHOR (F.I.L. N70093774/2).

Hægt að sækja í verslun á Brúarstræti 4

Usually ready in 1 hour