BL+ Cleansing Balm

Nærandi hreinsir knúinn áfram af BL+ COMPLEX™. Varan leysir upp farða og óhreinindi og styrkir varnarlag húðar.

BL+ Cleansing Balm inniheldur BL+ einkaleyfisvarin lífvirk innihaldsefni og nærir húð, augnhár og augabrúnir á sama tíma og hann leysir upp óhreinindi og skilur húðina eftir endurnærða og ljómandi.

9,900 kr

Stærð 80ml
Setja í körfu Komið í körfu

Húðin verður hrein, endurnærð og ljómandi. Farði og óhreinindi eru leyst upp á sama tíma og varnarlag húðarinnar styrkist. 

KLÍNÍSKAR NIÐURSTÖÐUR
Niðurstöður neytendakönnunar eftir eina notkun:

100% notenda voru sammála um að varan fjarlægi farða af andliti og augum á áhrifaríkan hátt
100% notenda voru sammála um að varan skilji húðina eftir hreina, mjúka og slétta
100% notenda voru sammála um að varan skilji ekki eftir fitukennda áferð
100% notenda voru sammála um að varan sé mild við húðina
97% notenda upplifðu þægindi og jafnvægi í húð
100% notenda upplifuð aukinn raka í húð
100% notenda myndu mæla með vörunni

Klínískar prófanir undir eftirliti húðlækna:

Rakastig húðar jókst um allt að 33% eftir eina notkun

*Byggt á klínískri prófun og neytendakönnun á 33 konum (30-60 ára, allar húðgerðir). Rakastig mælt með mælitækjum eftir eina notkun. Fjarlæging farða og sólarvarna metin af þjálfuðum sérfræðingum með flúorljómunaraðferð. Niðurstöður sjálfsmats skráðar eftir eina notkun.

Lykilefni

BL+ COMPLEX™ örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar. Við hönnun á BL+ COMPLEX™ er notuð náttúruleg fosfólípíðferja til þess að koma einstakri blöndu af einkaleyfisvörðum örþörungum og kísil Bláa Lónsins djúpt niður í húðlögin til að hámarka virkni. Einstakt innihaldsefni á heimsvísu sem finnst einungis í BL+ húðvörulínunni.

JARÐSJÓR BLÁA LÓNSINS endurnærir húðina með nauðsynlegum steinefnasöltum og eykur þannig heildarvirkni formúlunnar.

1. Notið kvölds og morgna, sem fyrsta skref í húðrútínu.
2. Berið á þurra húð og nuddið varlega yfir andlit, augu, augnhár og augabrúnir til að leysa upp farða og óhreinindi.
3. Bætið volgu vatni við og skolið síðan vandlega.
4. Fylgið eftir með BL+ vörum eftir húðgerð og sólarvörn yfir daginn.

CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, HELIANTHUS ANNUUS (SUNFLOWER) SEED OIL, COCO-CAPRYLATE/CAPRATE, GLYCERYL BEHENATE, EUPHORBIA CERIFERA (CANDELILLA) WAX (CANDELILLA CERA), POLYGLYCERYL-2 LAURATE, SEA WATER (MARIS AQUA), BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, PERLITE, TOCOPHEROL, WATER (AQUA), PENTYLENE GLYCOL, GLYCERIN, LECITHIN, ALGAE EXTRACT, SILICA, CITRIC ACID, SODIUM HYDROXIDE. 

Hægt að sækja í verslun á Brúarstræti 4

Usually ready in 1 hour