BL+ Eye Serum

Áhrifaríkt augnserum sem veitir öflugan raka, vinnur á fínum línum og dregur úr einkennum þreytu og þrota á viðkvæmu augnsvæðinu. BL+ Eye Serum inniheldur einstaka samsetningu lífvirkra innihaldsefna sem vinna á dökkum baugum, örva kollagenframleiðslu í húð, draga úr niðurbroti kollagens auk þess að verja húðina gegn umhverfismengun með andoxunarvirkni. Með reglulegri notkun verður augnsvæðið rakafyllt, þéttara, og bjartara og frísklegra ásýndum.

Virkni knúin áfram af okkar einstaka BL+ COMPLEX.

17,900 kr

Stærð 10ml
Setja í körfu Komið í körfu

Viðkvæmt augnsvæðið verður bjartara, frísklegra, þéttara og fær mikinn raka djúpt niður í húðlögin. Formúlan dregur úr sýnileika fínna lína, hrukkna og þreytumerkja auk þess að minnka þrota.

KLÍNÍSKAR NIÐURSTÖÐUR
Niðurstöður klínískrar rannsóknar eftir 8 vikna notkun, framkvæmd undir eftirliti húðlækna:

Þroti

64% notenda höfðu sýnilega minnkun á þrota/pokum undir augum

Dökkir baugar

67% notenda höfðu sýnilega minnkun á dökkum baugum

Raki

100% notenda sýndu marktæka hækkun á rakastigi húðar þegar mælt var með Corneometer®

Þéttleiki

Notendur höfðu marktæka aukningu í þéttleika húðar sem metið var af húðlækni

Hrukkur

Notendur höfðu verulega minnkun á dýpt hrukkna 30 mínútum eftir notkun (stakt skipti) sem mælt var með Primos 3D.

Notið kvölds og morgna eftir hreinsun.
Setjið kælandi stálrúlluna undir miðja augnbrúnina og dragið hana í hálfhring; út að ytri augnkrók og áfram undir augað.
Þrýstu augnseruminu gætilega inn í húðina með baugfingri.
Ráð: Notaðu BL+ Eye Serum yfir daginn til að fríska upp á þreytt augnsvæðið eða draga úr þrota.

Lykilefni:

BL+ COMPLEX örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar. Við hönnun á BL+ COMPLEX er notuð náttúruleg fosfólípíðferja til þess að koma einstakri blöndu af einkaleyfisvörðum örþörungum og kísil Bláa Lónsins djúpt niður í húðlögin til að hámarka virkni. Einstakt innihaldsefni á heimsvísu sem finnst einungis í BL+ húðvörulínunni.

JARÐSJÓR BLÁA LÓNSINS hleður húðina nauðsynlegum steinefnasöltum og eykur heildarvirkni formúlunnar.

C-VÍTAMÍN gerir húðina bjartari og hlutleysir sindurefni.

ÞRJÁR GERÐIR HÝALÚRÓNSÝRA tryggja rakagjöf niður í dýpstu húðlögin.

LAKKRÍSRÓT minnkar sýnileika dökkra bauga með því að draga úr framleiðslu melaníns.

KOFFÍN dregur úr þrota og gerir húðina bjartari.

Öll innihaldsefni:

WATER (AQUA), SEA WATER (MARIS AQUA), GLYCERIN, PENTYLENE GLYCOL, SODIUM HYALURONATE, ASCORBYL GLUCOSIDE, SODIUM LEVULINATE, CHONDRUS CRISPUS EXTRACT, SODIUM ANISATE, LECITHIN, CAMELLIA SINENSIS LEAF EXTRACT, LACTOBACILLUS FERMENT LYSATE FILTRATE, PUNICA GRANATUM EXTRACT, SODIUM HYDROXIDE, PHENETHYL ALCOHOL, CHLORELLA VULGARIS EXTRACT, BIOSACCHARIDE GUM-1, ALGAE EXTRACT, ALTEROMONAS FERMENT EXTRACT, LACTOBACILLUS FERMENT, SILICA, CAFFEINE, GLYCYRRHIZA GLABRA (LICORICE) ROOT EXTRACT, SODIUM CARRAGEENAN, GLYCERYL CAPRYLATE, JANIA RUBENS EXTRACT, CITRIC ACID, TOCOPHEROL.

Hægt að sækja í verslun á Brúarstræti 4

Usually ready in 1 hour