BL+ Lip Renewal Mask 12ml

Áhrifarík varameðferð knúin áfram af BL+ COMPLEX™, þróuð til að vinna gegn fínum línum á varasvæði ásamt því að mýkja, slétta og styðja við húðina. BL+ Lip Renewal Mask sameinar BL+ einkaleyfisvarin lífvirk innihaldsefni með bakúsíóli og seramíðum til að styðja við kollagenmyndun, styrkja varnarlag varanna og draga úr þurrki. Ríkuleg formúlan nærir á meðan hún mýkir sýnileika fínna lína og bætir áferð. Sérhannað áhald fylgir með til að tryggja auðvelda notkun, örva blóðflæði til vara, bæta aðgengi formúlunnar og árangur meðferðar.

8,900 kr

Setja í körfu Komið í körfu

Varir eru sjáanlega sléttari, mýkri og með bættri áferð. Sýnleiki fínna lína á varasvæði minnkar á meðan rakastig eykst og varnarlag varanna styrkist.

KLÍNÍSKAR NIÐURSTÖÐUR
Niðurstöður úr mati þátttakenda eftir 8 vikna vikna notkun á BL+ Lip Renewal Mask*:

100% notenda voru sammála um að varan ÞÉTTIR
100% notenda voru sammála um að varan BÆTIR ÁFERÐ
100% notenda voru sammála um að varan MINNAR SÝNILEIKA FÍNNA LÍNA í kringum varir
100% notenda voru sammála um að varan gefi FYLLRI ÁSÝND
100% notenda myndu MÆLA MEÐ VÖRUNNI
Niðurstöður mælinga eftir 8 vikna notkun á BL+ Lip Renewal Mask**:

RAKASTIG á varasvæði jókst um 56% að meðaltali
DÝPT HRUKKNA MINNKAÐI allt að 55.6%
Áferð vara varð 12,6% SLÉTTARI að meðaltali
Óháð klínísk rannsókn á 32 konur á aldrinum 30-60 ára eftir 8 vikna notkun, framkvæmd undir eftirliti húðlæknis.
*Niðurstöður úr spurningakönnun
**Rakastig vara var mælt með Corneometer® og dýpt hrukka og áferð vara með PrimosCR® 3D húðgreiningu.

Lykilefni

BL+ COMPLEX™ örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar. Við hönnun á BL+ COMPLEX™ er notuð náttúruleg fosfólípíðferja til þess að koma einstakri blöndu af einkaleyfisvörðum örþörungum og kísil Bláa Lónsins djúpt niður í húðlögin til að hámarka virkni.

BL+ Minerals™ (sölt úr jarðsjó Bláa Lónsins) endurnærir húðina með nauðsynlegum steinefnasöltum og eykur þannig heildarvirkni formúlunnar.

Bakúsíól 0.5% (bakuchiol), innihaldsefni unnið úr fræjum Psoralea coryfolia-plöntunnar, hefur margvíslegan ávinning sem svipar til virkni retínóls. Það þéttir húðina, bætir áferð, húðtón og eykur ljóma.

Seramíð (ceramides), veita raka og bæta lípíðforða en þau fyrirfinnast náttúrulega í húðinni. Þau gegna mikilvægu hlutverki í varnarlagi húðarinnar og gera hana mýkri og sléttari.

1. Notið áhaldið til að taka ríkulegt magn af vörunni
2. Berið jafnt lag hreinar, þurrar varir og svæðið í kringum þær
3. Notið grófari hlið áhaldsins og rennið því mjúklega yfir varirnar og í kringum þær
4. Notið léttar strokur eða hringlaga hreyfingar í nokkrar sekúndur til að örva blóðflæði og bæta aðgengi vörunnar
5. Leyfið vörunni að smjúga innhúðina. Endurtakið eftir þörfum eða notið sem næturmaska.

RICINUS COMMUNIS (CASTOR) SEED OIL, SQUALANE, GLYCERYL STEARATE, OLEIC/LINOLEIC/LINOLENIC POLYGLYCERIDES, WATER (AQUA), SIMMONDSIA CHINENSIS (JOJOBA) SEED OIL, HYDROGENATED CASTOR OIL, VEGETABLE OIL (OLUS OIL), JOJOBA ESTERS, SEA WATER (MARIS AQUA), PENTYLENE GLYCOL, HELIANTHUS ANNUUS (SUNFLOWER) SEED WAX, PROPANEDIOL, LACTOBACILLUS FERMENT, HYDROGENATED VEGETABLE OIL, BAKUCHIOL, CALCIUM KETOGLUCONATE, PUNICA GRANATUM FLOWER EXTRACT, EUPHORBIA CERIFERA (CANDELILLA) WAX (CANDELILLA CERA), POLYGLYCERYL-3 DIISOSTEARATE, TOCOPHEROL, CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, POLYGLYCERIN-3, ACACIA DECURRENS FLOWER WAX, ACMELLA OLERACEA EXTRACT, SORBITAN OLIVATE, GLYCERIN, CERAMIDE NP, LECITHIN, SODIUM HYALURONATE, ALGAE EXTRACT, UNDARIA PINNATIFIDA EXTRACT, SILICA, CAPROIC ACID, CITRIC ACID, SODIUM HYDROXIDE.

Hægt að sækja í verslun á Brúarstræti 4

Usually ready in 1 hour