Foaming Cleanser

Mild og steinefnarík hreinsifroða sem fjarlægir farða og óhreinindi. Húðin verður frísklegri, hreinni og kemst í aukið jafnvægi.

7,500 kr

Stærð 150ml
Setja í körfu Komið í körfu

Foaming Cleanser er freyðandi andlitshreinsir, tilvalinn sem fyrsta skref í húðrútínu þar sem hann fjarlægir farða og óhreinindi á áhrifaríkan hátt. Húðin verður frísklegri, hreinni og kemst í aukið jafnvægi.

Fíngerð og létt áferð
Klínískt prófað
Rekjanleg innihaldsefni valin af ábyrgð
Hentar öllum húðgerðum
Vegan

1. Vætið fingurnar og nuddið froðuhreinsinum gætilega yfir andlitið.
2. Skolið með volgu vatni.

Lykilefni:

ÖRÞÖRUNGAR BLÁA LÓNSINS hafa nærandi, andoxandi og endurnýjandi eiginleika. Einkaleyfisvarðir blágrænþörungarnir finnast í einstöku vistkerfi Bláa Lónsins en þeir örva, varðveita og vernda kollagenforða húðarinnar.

KÍSILL BLÁA LÓNSINS hefur djúphreinsandi, náttúrulega leireiginleika sem draga óhreinindi úr húðinni og bæta yfirbragð hennar. Kísillinn er lífvirkt innihaldsefni sem gefur Bláa Lóninu sinn einkennandi bláa lit og hefur verndandi og styrkjandi áhrif á náttúrulegt varnarlag húðarinnar.

JARÐSJÓR BLÁA LÓNSINS er dýrmæt uppspretta nauðsynlegra steinefna sem efla og styrkja varnir húðarinnar. Uppleystu steinefnin gera húðina móttækilegri fyrir upptöku annarra virkra innihaldsefna svo heildarvirkni formúlunnar eykst.

Öll innihaldsefni:

AQUA (WATER), PEG-6 CAPRYLIC/CAPRIC GLYCERIDES, SODIUM LAURETH SULFATE, MARIS AQUA (SEA WATER), GLYCERIN, PHENOXYETHANOL, COCAMIDOPROPYL BETAINE, COCO-GLUCOSIDE, PROPYLENE GLYCOL, PARFUM (FRAGRANCE), SODIUM BENZOATE, POTASSIUM SORBATE, LACTIC ACID, PANTHENOL, MALACHITE EXTRACT, SILICA, HEXYL CINNAMAL, SODIUM LAUROYL OAT AMINO ACIDS, LIMONENE, LINALOOL, UREA, ALPHA-ISOMETHYL IONONE, GLYCYRRHETINIC ACID, ALCOHOL, ALLANTOIN, ASPARAGOPSIS ARMATA EXTRACT, CITRIC ACID, PANTOLACTONE, ALGAE EXTRACT, CAPRYLYL GLYCOL, ETHYLHEXYLGLYCERIN, DISODIUM EDTA.

Hægt að sækja í verslun á Brúarstræti 4

Usually ready in 1 hour