1 - Hreinsið þína nögl, fjarlægið naglalakk ef það á við. Gott er að pússa létt yfir þína nögl og snyrta naglabönd. Einnig er gott að strjúka yfir þína nögl með naglalakkhreinsi, til að koma í veg fyrir raka og fjarlægja náttúrulega olíu naglarinnar. 2 - Finnið rétta stærð með að máta gervinöglina á þína nögl, án þess að setja lím. 3 – Berið þunnt lag af lími á þína nögl og passið að límið fari ekki á húðina eða í naglaböndin. 4 – Leggið gervinöglina upp að naglaböndunum, passið að líma ekki á naglaböndin. Leggið gervinöglina niður á þína nögl, frá naglaböndum og niður. 5 – Þrýstið gervinöglinni rólega niður og haldið létt við í um 15 sek, eða þar til að límið hefur fest sig.