Eru neglurnar brotnar eða rifnar? Essie Break Fix reddar bókstaflega málunum. Þetta nýja naglalakk viðheldur lengd naglanna og útliti þeirra á einfaldan og hraðvirkann hátt.
Einstök tækni sem breytist úr vökva við ásetningu í fast efni sem festist strax við brotnar eða rifnar neglur og heldur þeim saman. Límið þornar fljótt og myndar sterkt, gegnsætt lag sem heldur nöglinni saman í allt að 5 daga. Break Fix er þægileg viðgerð, hvort sem er heima eða á ferðinni.
Þessi þunna og gegnsæja formúla skilur ekki eftir sig klístraða eða ójafna áferð. Formúlan er létt og er slétt á yfirborði naglanna sem er ósýnileg undir naglalakki.
Helstu eiginleikar:
• Heldur brotinni nögl saman samstundis í allt að 5 daga
• Slétt og samfelld áferð
• Berst á sem vökvi og breytist í fast efni
• Auðveld notkun
• Hægt að nota undir naglalakk
• Tilvalið á ferðinni
• Handhægar umbúðir og nákvæmur bursti fyrir snyrtilega viðgerð hvar og hvenær sem er
• Vegan formúla**