ESSENTIAL BRUSH SET inniheldur eftirfarandi bursta: CONCEALER BRUSH Náðu fullkominni áferð með CONCEALER BRUSH, sem tryggir nákvæma og náttúrulega þekju. Flöt og fíngerð hár burstans gera það auðvelt að bera á og blanda hyljara, hvort sem þú ert að fela bólur, dökka bauga eða roða. FOUNDATION BRUSH Hinn fullkomni FOUNDATION BRUSH! Þessi faglega hannaði bursti tryggir jafna og rákalausa ásetningu á bæði fljótandi og kremkenndum farða. CONTOUR BRUSH Tryggir nákvæma ásetningu og auðvelda blöndun á púðri og kremum. MULTI BRUSH MULTI BRUSH – nýr ómissandi bursti fyrir allar tegundir púðurs! Þessi fjölhæfi bursti er hannaður til að skila áferðarfallegri útkomu, hvort sem þú notar laust púður, pressað púður, bronzer eða kinnalit. PRECISION BRUSH Fallegt og fágað augnförðunarútlit með PRECISION BRUSH. Hannaður bæði fyrir ásetningu og blöndun á augnskugga. Fín hár burstsins gera þér kleift að setja lit nákvæmlega þar sem þú vilt – hvort sem þú ert að móta augnkrókinn, lýsa innri augnkrókinn eða auka dýpt við augnháralínuna.