Absolue Longevity Reset Cream frá Lancôme er áhrifamikið krem sem er hannað til að vinna á sýnilegum öldrunarmerkjum og líffræðilegum aldri húðarinnar.
Kremið inniheldur einkaleyfisvarið Mitopure® frá Timeline sem er í samstarfi við Lancôme, 98,5% hreina og örfína útgáfu af Urolithin-A sem styður við endurnýjunarferli hvatbera í frumum húðarinnar og eykur þannig orku þeirra.
Reset virknin í kreminu beinist sérstaklega að öldrun húðfrumna og vinnur þannig gegn djúpum hrukkum og minnkandi stinnleika. Þegar þessi virku innihaldsefni blandast með einstöku Reset Compound™ hefur verið sýnt fram á klínískt að kremið getur dregið úr sýnilegum aldri húðarinnar.
Silkimjúk og lúxuskennd áferð veitir hámarks þægindi, á meðan húðin fær endurnýjaðan ljóma og djúpa vellíðan.
Með allt að +55% aukningu í teygjanleika húðar er þetta framsækið val fyrir þroskaða húð sem leitar að endurnýjun og auknum stuðningi við húðbyggingu.