Lyftu augnförðuninni á næsta level með Lancôme Hypnôse Drama Mascara settinu, sem er hannað til að veita öfgafulla fyllingu og langtíma endingu. Hypnôse Drama maskarinn í fullri stærð inniheldur 2% Bonding Complex og hjúpar augnhárin djúpum svörtum lit fyrir allt að 17x meiri fyllingu og allt að 24 klst. endingu, á meðan hann styrkir og verndar augnhárin. Settið inniheldur einnig maskara í ferðastærð og nýja Cils Booster XL primerinn, sem skapar góðan grunn og hámarkar áhrif maskarans upp í allt að 21x meiri fyllingu. Berðu hvíta primerinn fyrst á og síðan maskarann til að fá seiðandi og dramatíska augnförðun.
Hentar jafnt til daglegrar notkunar sem við sérstök tilefni. Þetta lúxussett er prófað og samþykkt af augnlæknum og hentar viðkvæmum augum sem og notendum augnlinsa. Fullkomið sem gjöf eða til að bæta snyrtisafnið þitt með tafarlausu, kraftmiklu dramatísku útliti.
• Takmarkað upplag: Maskari í fullri stærð ásamt primer í ferðastærð fyrir einstaka augnförðunar upplifun.
• Öfgafull fylling: Hypnôse Drama formúlan veitir allt að 17x meiri fyllingu með uppbyggjanlegum áhrifum.
• Ferðavænt: Mini stærðir sem henta fullkomlega til að fríska upp á útlitið á ferðinni.
• Styrkjandi formúla: 2% Bonding Complex styrkir augnhárin á meðan hann eykur fyllingu.
• Primerinn: Cils Booster XL primerinn eykur áhrif maskarans upp í allt að 21x meiri fyllingu."