Prada Paradoxe Sweet Chemistry er nýr, áfyllanlegur ávaxta- og blómailmur sem heillar skilningarvitin með nútímalegri túlkun á sætleika. Einkennandi nerólí tónar Paradoxe líðnunnar sameinast þykkni appelsínublóma, mjúkum, kremuðum mjólkurtónum og ávanabindandi, svörtum sólberjasírópstónum.
Ilmurinn sameinar ríkulega, ávaxtakennda tóna og fágaðan glæsileika sem endurspeglar nútímalegan kvenleika og er á sama tíma mjúkur og kraftmikill, fágaður og flæðandi.
NÁKVÆMT JAFNVÆGI ÁVAXTATÓNA, LJÓMA OG UNAÐS
Ilmurinn er skapaður af ilmmeisturunum Nadège Le Garlantezec, Shyamala Maisondieu og Antoine Maisondieu. Samsetningin byggist upp í safaríkum, kremkenndum og seiðandi lögum sem skapa djúpa og eftirminnilega ilmupplifun.
ÁFYLLANLEG FLASKA
Glæsileg ilmflaska sem er hönnuð til að endast og hægt er að fylla á aftur og aftur. Með því að kaupa 100 ml áfyllingu í stað þess að kaupa tvær nýjar 50 ml Prada Paradoxe Sweet Chemistry flöskur sparast 44% gler, 100% málmar, 67% plast og 61% pappi.
PARADOXE
Paradoxe er boð um að kanna og tjá margþætta sjálfsmynd. Ilmlínan fagnar konu sem er aldrei nákvæmlega eins en ávallt hún sjálf. Ilmirnir þróast með henni þegar hún kannar nýjar hliðar á sjálfri sér, endurskapar sig og endurhugsar hver hún er.