Þessi öfluga og sérhæfða formúla vinnur gegn sýnilegum slappleika húðar frá mörgum sjónarhornum og beinist að djúpum hrukkum, svipbrigðalínum og slappleika sem fylgir aldri. Útkoman er mótaðra yfirbragð andlitsins og skýrari, betur afmörkuð kjálkalína. Serumið hjálpar jafnframt til við að draga úr ásýnd dökkra bletta, ójafns húðlitar og lífleysis og stuðlar þannig að jafnara og bjartar yfirbragði. Formúlan byggir á framsæknum rannsóknum SHISEIDO á slappleika húðar. Hið einstaka D-AminoLift Complex™ frá SHISEIDO styrkir húðina og stuðlar að aukinni lyftingu og skýrari andlitsdráttum. Brunnkarsaþykkni styður við náttúrulegt kollagen húðarinnar og stuðlar þannig að auknum stinnleika. Uppgötvaðu mótaðri og skýrari andlitsdrætti.
HELSTU EIGINLEIKAR:
• 100% þátttakenda sýndu sjáanlegan árangur hvað varðar slappleika í kinnum, nef- og munnvikslínur, maríónettulínur og hrukkur á hálsi á aðeins einni viku *¹
• Mótar andlitsdrættina sýnilega, dregur fram skýrari kjálkalínu og veitir húðinni betur afmarkað yfirbragð
• Dregur úr ásýnd dökkra bletta, ójafns húðlitar og lífleysis
• Veitir 24 klukkustunda rakagjöf*²
• Veitir bæði tafarlausan og langvarandi sýnilegan árangur
• Fágaður blómailmur, innblásinn af orkídeu og japönskum kryddrunna
• Prófað undir eftirliti húðlækna. Stíflar ekki svitaholur. *¹Klínískt prófað á 33 konum, 1 vika.
*²Klínísk rakaprófun á 25 konum.
• D-AminoLift Complex™ (D-Aspartic-sýra, Níasínamíð og SafflowerRED™): Efnasamsetning með lykilamínósýru sem hjálpar til við að styrkja húðina og stuðlar að skýrari andlitsdráttum og sýnilegri lyftingu.
• Brunnkarsaþykkni: Hjálpar til við að styðja náttúrulegt kollagen húðarinnar fyrir aukinn þéttleika.
• 4MSK: Einstakt innihaldsefni SHISEIDO sem stuðlar að bjartara og ljómameira yfirbragði húðarinnar yfir lengri tíma og hjálpar til við að draga úr ásýnd dökkra bletta og lífleysis.