LED Spot & Blemish Patch

4.990 kr

Setja í körfu Komið í körfu

Stylpro LED Spot & Blemish Patch er endurhlaðanleg húðmeðferð sem sameinar markvissa ljósameðferð og plástra með vatnshlöðnu geli og salicýlsýru.

Fyrirsögn:

“Einblína, tríta, umbreyta”

Náðu hreinni og sléttari húð með endurhlaðanlega Stylpro Spot & Blemish Patch og 20 stk. Stylpro Hydrocolloid og Salicylic Plástrum. Létt og ferðavæn meðferð sem notar 6x blá (415nm) og 6x nær-innfrarauð (830nm) LED ljós til að veita árangursríka og sársaukalausa ljósameðferð á aðeins 10 mínútum.

Plástrarnir draga í sig óhreinindi, hreinsa og endurnýja húðina. Einnig minnka þeir bólgur og hjálpa til við endurheimt sem flýtir fyrir hreinni og mýkri húð.
Hentar einnig þeim sem eiga til að fá fílapensla, bólur eða litabletti.

LEIÐBEININGAR

HLEÐSLA:

Rauða LED-ljósið blikkar þegar rafhlaðan er að tæmast.
Settu USB-C snúruna (sem fylgir með) í tengið á hlið tækisins. Tengdu við USB-C hleðslukubb í rafmagn. Rauða ljósið á hringnum logar rautt þegar tækið er í hleðslu og breytist í blátt þegar það er fullhlaðið.



NOTKUN:

Hreinsaðu og þurrkaðu húðina.

Taktu einn plástur af plástrablaðinu. Festu hann á LED tækið þannig að endi plástursins standi aðeins út fyrir brún tækisins (sjá mynd í kassanum).

Notaðu plastflipann til að fjarlægja hlífðarplastið af plástrinum.

Kveiktu á tækinu með því að ýta á ON/OFF-hnappinn og þrýstu tækinu fast að svæðinu sem á að meðhöndla.

Bíddu í 10 mínútur þar til ljósið slokknar sjálfkrafa. Haltu svo í flipann á plástrinum og taktu tækið varlega af, plásturinn situr svo eftir á húðinni.
Fyrir besta árangurinn, skildu plásturinn eftir á húðinni yfir nótt eða í að minnsta kosti 5 klukkustundir. Fjarlægðu og hentu eftir notkun.



HREINSUN:

Nuddaðu burt límleifar með fingrunum.

Þurrkaðu tækið með sótthreinsandi þurrku, en gakktu úr skugga um að vökvi komist ekki inn í USB-C tengið.

Hægt að sækja í verslun á Brúarstræti 4

Usually ready in 1 hour