Mini Discovery Set er fullkomið byrjendasett fyrir þá sem vilja kynnast The Ordinary. Settið inniheldur ferðastærðir af nokkrum af vinsælustu vörum merkisins. Vörurnar koma í merktri snyrtitösku sem hentar vel til geymslu á húðumhirðuvörum, bæði heima og á ferðalögum. Taskan er framleidd úr sellulósa og er að fullu lífbrjótanleg þegar rennilásinn hefur verið fjarlægður. Settið inniheldur hreinsi, tóner, andlitsserum, augnserum og rakakrem.
Squalane Cleanser: Hreinsir sem fjarlægir og hreinsar förðunarvörur og óhreinindi. Hreinsirinn styður við náttúrulegan rakahjúp húðarinnar og húðin helst mjúk vegna lipophilic estera. Formúlan er ekki ofnæmisvaldandi og er sápulaus og hentar því vel til daglegrar notkunar. Formúlan hentar öllum húðgerðum.
Glycolic Acid 7% Exfoliating Toner: Andlitsvatn sem fjarlægir dauðar húðfrumur af ysta lagi húðarinnar ásamt því að fríska hana upp og vinna á litablettum. Formúluna á ekki að nota á viðkvæma húð. Inniheldur aloe vera, ginsing og aminó sýrur. Ph gildi formúlunnar er 3,6. Tips: Hægt er að nota vöruna til að taka svarta bletti undir höndum eða til að koma í veg fyrir inngróin hár. Formúlan inniheldur AHA sýrur sem gera húðina viðkvæma fyrir sólargeislum. Hentar öllum húðgerðum, nema mjög viðkvæmum.
Niacinamide 10% + Zinc 1%: Serum sem eykur ljóma og sléttir húðina. Formúlan vinnur á bólum og minnkar húðholur með tímanum vegna hás styrks af niacinamide (vitamin B3) og zinc PCA. Hentar öllum húðgerðum.
Hyaluronic Acid 2% + B5: Andlitsserum sem sameinar lágar-, meðal- og þunnar hýalúrónsýrur sem viðhalda raka húðarinnar. Formúlan vinnur einnig á hrukkum og sléttir áferð húðarinnar. Hún inniheldur pro-vítamín B5 til að auka raka sem leiðir til sléttari og þéttari húðar.
Caffeine Solution 5% + EGCG: Augnserum sem dregur úr þrota og dökkum baugum í kringum augun.
Natural Moisturizing Factors + HA: Olíulaust rakakrem sem styður við náttúrulegan rakahjúp húðar. Rakakremið verndar ytra lag húðarinnar og gefur henni raka án þess að skilja eftir sig fitu.