Upplifðu augnhár sem verða samstundis lengri og með meiri lyftingu með Urban Decay Tube Job Tubing maskaranum. Maskarinn veitir augnhárunum samstundis lyftingu og lengd sem endist í allt að 24 klukkustundir án þess að þau missi lyftinguna.
Sérstök Tube-Locking tækni myndar sýnilegan hjúp utan um hvert augnhár sem lyftir, aðskilur og mótar augnhárin. Einstaklega nákvæmur burstinn tryggir jafna ásetningu án þess að maskarinn smitist, flagni eða myndi kekki. Auðvelt er að fjarlægja maskarann með volgu vatni og því er enginn farðahreinsir nauðsynlegur.
Formúlan samanstendur af 89% serum-tækni sem er auðguð með hýalúrónsýru, peptíðum, laxerolíu og sheasmjöri sem næra og styrkja augnhárin.
• Allt að 24 klukkustunda lyfting, lengd og ending.
• 11% meiri lyfting og 34% meiri lengd augnhára.
• Tube-Locking tæknin kemur í veg fyrir að maskarinn smitist eða flagni og skilur ekki eftir dökkan lit undir augunum.
• Myndar sýnilega hjúp sem umlykur hvert augnhár af mikilli nákvæmni.
• 89% serum-tækni með hýalúrónsýru, peptíðum, laxerolíu og sheasmjöri.
• Eftir 7 daga notkun virðast náttúruleg augnhár heilbrigðari, sterkari og vel nærð.
• Létt formúla sem kekkjast ekki, aðskilur augnhárin og rennur auðveldlega frá rót að enda með 2x þynnri burstahárum*.
• Smitast ekki og flagnar ekki. Allt að 24 klukkustunda lyfting og lengd.